Færsluflokkur: Margskonar menning

Eitt stykki menningarhús

Byrjað verður að moka fyrir menningarhúsi á Akureyri í dag kl. 17 og er ástæða til þess að hvetja bæjarbúa að þiggja boð um að vera viðstaddir. 

Þegar þar að kemur sendir Ístak kannski frá sér reikning, í stíl við það sem afi gerði þegar Slippstöðin byggði flugturninn á Akureyri. Hann yrði þá svona; An: eitt stykki menningarhús, kr. 740 milljónir.


Heimþrá

c_skapti_listasafn.jpg

Hannes sýnir nú heimþrá í Listsafninu. Þar er allt í drasli. Ekki að Hannes hafi ekki tekið til en óhætt er að segja að á hluta verkanna, ljósmyndunum, sé allt í drasli. Sjón er sögu ríkari.

En það var næs við opnunina á laugardaginn. Rauður ellefu prósent berjasafi í boði og fólk skrafaði í rólegheitum.


Örljóð - V

(um það sem Riquelme hugsaði kannski eftir að Þjóðverjinn varði vítið frá honum)

Lem'ann

Lehmann


Örljóð - IV

(um Eið Smára Guðjohnsen) 

Hann

kann


Örljóð - III

(Um Leif heppna)

Hann

fann


Örljóð - II

(um Íslending á sólarströndu)

Hann

brann


Örljóð - I

(um sigurvegarann, hver svo sem hann er hverju sinni) 

Hann

vann


KEN - Kvikmyndaklúbbur Eyfirðinga og nærsveitamanna ?

Ég fékk þennan póst í dag frá kunningja mínum - og vona að draumur hans rætist:

"Eins og flestum ykkar er kunnugt þá hefur verið rætt um stofnun kvikmyndaklúbbs á Akureyri á liðnum misserum og segja má að gerð hafi verið tilraun í þá átt með svo kölluðum kvikmyndatorgum, sýningum tengdum kennslu í nútímafræði (ofl. greinum). Einnig hefur þýsk-akureyska vinafélagið boðað til sýninga á nýjum og athyglisverðum myndum frá Þýskalandi. Nú virðist vera að rætast úr fyrir þeim okkar sem hafa áhuga á öðru en því sem er sýnt í kvikmyndahúsum staðarins. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær (20. apríl, sumardaginn fyrsta) þá ætlar Örn Ingi Gíslason að vígja 80 manna kvikmyndasal að Óseyri 6 með sýningu myndarinnar Flóttinn (135 mín, leikin) 6. maí kl. 17.00. Fyrir sýninguna verður málþing um stöðu kvikmynda á Íslandi (nánar seinna). Við Örn vorum sammála um að gaman væri ef hægt væri að tilkynna stofnun kvikmyndaklúbbs við þetta tækifæri."

Ég var svo skrýtinn á unglingsárum að fara á sérstakar sýningar á myndunum Jónatan Livingston mávur og Dagur  í lifi Ivans Denisovítsj, sú seinni eftir sögu Solsjenítsíjns. Held það hafi verið KVIKMA, Félag kvikmyndaáhugamanna í MA, sem stóð fyrir sýningunum.

Þetta voru skemmtilegir tímir, og koma vonandi aftur nú.


Orða vant

(upphaf)

.

.                           

.

.

           

(endir)


Forboðnir ávextir

Fortíðardraumar.

Framtíðarþrá.

Er þetta það sem ekki má?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband