Í ham

Ég vona að lesendur þessa einkafjölmiðils míns fyrirgefi lætin í kvöld. Stundum langar mig að skrifa mikið og þá er ritstjórnarstefnan bara þannig að magnið ríður rækjum, afsakið; ræður ríkjum. Þeir sem ekki nenna að lesa segja einfaldlega upp áskriftinni, sem er reyndar ekki hægt. Þeir sem hafa gaman af mega hins vegar leggja eina krónu hver inn á 565-26-190 . . .

5%

DÖKKBLÁTT ÁL. ÍSLENSKT VATN, MALT, MAÍS, SYKUR , HUMLAR.

Jónas og hinir

Ég gleymi því aldrei þegar meistari Tryggvi, sem kenndi okkur "Íslenskar bókmenntir" eins og ég held að það hafi heitið í MA, greindi íslensk ljóðskáld í tvo "hópa": Annars vegar er Jónas Hallgrímsson og hins vegar allir hinir!

- - - - - -

Skein yfir landi sól á sumarvegi

og silfurbláan Eyjafjallatind

gullrauðum loga glæsti seint á degi.

. . . . . 

Þar sem að áður akrar huldu völl

ólgandi Þverá veltur yfir sanda;

sólroðin líta enn hin öldnu fjöll

árstrauminn harða fögrum dali granda;

flúinn er dvergur, dáin hamratröll,

dauft er í sveitum, hnipin þjóð í vanda;

en lágum hlífir hulinn verndarkraftur

hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur.

- - - - - -

Þurfti að yrkja meira?


Ský yfir 603?

Ég nenni ekki út að gá en liggi hvítlauksský yfir 603 er það mér að kenna.

Ástæðan: metsölubókin Brauðréttir Hagkaupa, bls. 142

Kvartanir sendist Hæstarétti, þakkir sendist mér.


Lostæti

Brauðréttir Hagkaupa, bls. 142

Beckett

Hundrað ár eru í dag liðin frá fæðingu Samuels Beckett. Furðulegur náungi, Írinn sá. Eða snillingur, oft stutt þar á milli. Jú, líklega snillingur því hann gat gert grín að öllum hinum með illskiljanlegum leikritum. Og fékk Nóbel fyrir.

Húsið á sléttunni

Munur að vera með DR1 í kassanum.

Konan var að fikta í fjarstýringunni og heyrist þá ekki allt í einu kunnuglegt stef og sjáum við þá ekki kunnuglegan herra Ingalls og kunnuglega Láru Ingalls - á að giska 6 ára. Det lille hus på prærien hjá danska ríkinu.

Lífið var erfitt á sléttunni. En það var voða kósí þegar þau lágu i hjónarúminu og borðuðu popp.


Hrunadansinn

Hollt væri það þjóðinni allri að lesa miðopnu Morgunblaðsins í gær þar sem birtur er nýr ljóðabálkur, Hrunadansinn, eftir Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóra okkar á Mogganum.

Þar segir M meðal annars:

Hvort breiðir út faðminn mót Fróni sú mammonsgóða

framtíð sem nú er hvarvetna að allra dómi

efst á baugi í baráttu smæstu þjóða

við basl og örbirgð,

virðing okkar og sómi

er vandasöm fylgd við fjármagn og ofsagróða

þegar fegurð asksins er líkust deyjandi hjómi

og níðhöggs tennur nærast þar við rót

sem nýöld mammons fremur sín heiðnu blót.


Vaxtarrækt og fitness

Siggi Gests heldur Íslandsmót í vaxtarrækt og í fitness um páskana og sjálfsagt að koma því á framfæri hér í einkafjölmiðli mínum. Vissi ekki af því í gær og gat þessa því ekki í Mogganum í dag.

Á morgun, föstudaginn langa, hefst forkeppni í vaxtarræktinni og nýrri grein sem kölluð er módelfitness (og þátttakendur bara konur), kl. 16 og úrslit kl. 20.  Hvort tveggja í Sjallanum.


Á laugardaginn er svo Íslandsmótið í fitness í Höllinni. Forkeppni hefst klukkan 11.30 og úrslit kl. 18.00.

Reikna má með miklu fjöri og harðri keppni á öllum vígstöðvum.


Næsta hús við þriggja hillu sjoppuna

Jæja, þá er Mogginn á Akureyri fluttur úr Kaupvangsstræti 1 - úr fjölmiðlahúsinu, eins og það var einu sinni kallað þegar DV var þar líka með skrifstofu. RÚV var þar þá og er enn.

Við Moggamenn erum nú fluttir í húsnæði Hölds við Tryggvabraut. Í húsinu fyrir neðan er Litla kaffistofan þar sem Kennedyarnir ráku einu sinnu sjoppu og elsta dóttir mín kallaði þriggja hillu sjoppuna.

Í þessum helga stað var nefnilega "laugardagsnammi" í þremur hillum og þótti flottasta sjoppa landsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband