9.8.2006 | 22:18
Í ökla eða eyra
Sara fékk göt í eyrun í dag en ég er hálf slæmur í öklanum.
Þetta seinna er reyndar bara lygi, en lítur svo flott út.
Ég er hins vegar að drepast í öðru eyranu, bólginn, sýktur og hálf heyrnarlaus. Læknirinn leit þar inn og spurði hvort fluga hefði flogið inn í eyrað og stungið undirritaðan. - Ekki svo ég viti, sagði ég. Fékk dropa sem ég notaði einu sinni, í gærkvöldi, en týndi þeim einhvern veginn í ósköpunum heima og þurfti að fara aftur í dag - til sama læknis - og fékk aftur eins dropa! Vona að þetta lagist því ég má ekki vera að því að liggja flatur. Þarf að vinna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.