13.4.2006 | 13:30
Vaxtarrækt og fitness
Siggi Gests heldur Íslandsmót í vaxtarrækt og í fitness um páskana og sjálfsagt að koma því á framfæri hér í einkafjölmiðli mínum. Vissi ekki af því í gær og gat þessa því ekki í Mogganum í dag.
Á morgun, föstudaginn langa, hefst forkeppni í vaxtarræktinni og nýrri grein sem kölluð er módelfitness (og þátttakendur bara konur), kl. 16 og úrslit kl. 20. Hvort tveggja í Sjallanum.
Á laugardaginn er svo Íslandsmótið í fitness í Höllinni. Forkeppni hefst klukkan 11.30 og úrslit kl. 18.00.
Reikna má með miklu fjöri og harðri keppni á öllum vígstöðvum.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.