Síðasti heimaleikurinn og fyrsti HEIMALEIKURINN

Tvíhöfði gegn FH

Handboltalið Þórs tekur á móti Val í dag í DHL-deildinni í handbolta í íþróttahúsi Síðuskóla. Já, íþróttahúsi Síðuskóla. Flautað verður til leiks kl. 16.15 og eins gott að mæta tímanlega því leyfilegur fjöldi áhorfenda í salnum er mjög takmarkaður, eins og margfrægt er orðið. Þetta er síðasti heimaleikur Þórs í vetur en jafnframt fyrsti alvöru heimaleikur liðsins. Spilað verður í miðju Þórshverfinu í fyrsta skipti og því stutt að fara fyrir hina dyggu stuðningsmenn liðsins.

Ástæða þess að leikið er í Síðuskólanum í dag er sú að Íþróttahöllin við Skólastíg er upptekin. Þar fer fram lokahátíð Andrésar andar leikanna á skíðum og þess vegna var gripið til þess ráðs að velja húsið með besta gólfinu í bænum!

Þetta verður síðasti heimaleikur Axels Stefánssonar þjálfara með liðið. Hann hættir störfum í vor og heldur til Noregs í framhaldsnám, auk þess að þjálfa lið Elverum þar í landi. Ástæða er til þess að hvetja fólk til þess að koma og kveðja Axel með tilþrifum.

Ég á ekki von á því að nokkur annar viðburður skyggi á leik okkar gegn Val í dag. Leikur Liverpool og Chelsea í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta fer reyndar fram á sama tíma, en ótrúlegt þykir mér að nokkur taki hann fram yfir.

Í tilefni dagsins birti ég hér að gamni mínu nokkrar myndir sem ég hef tekið í leikjum Þórsliðsins í vetur. Til þess að sjá þær verður að ýta á fyrirsögn greinarinnar.


c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_or_-_haukar022.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_or_-_haukar005.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_or_-_fh_192.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_or_-_fh_189.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_or_-_fh_130.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_sindri_har.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_runar_frikast_r.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_bjarni_gunnar.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_axel_stef003.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_atla_fagna_a_bekknum.jpg
c_documents_and_settings_owner_desktop_myndir_addi_mall.jpg

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband