Færsluflokkur: Dægurmál
24.4.2006 | 19:50
Örljóð - III
(Um Leif heppna)
Hann
fann
Dægurmál | Breytt 26.4.2006 kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2006 | 13:04
Örljóð - II
(um Íslending á sólarströndu)
Hann
brann
Dægurmál | Breytt 26.4.2006 kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2006 | 09:18
Fallegasti völlurinn?
Geir Kristinn vinur minn, og vinur Akureyrarvallar, sendi mér þessa mynd á dögunum. Honum finnst birtast of margar ljótar myndir af vellinum þegar í fréttum er fjallað um hann og aðra hugsanlega nýtingu svæðisins.
Er þetta kannski fallegasta vallarsvæði í heimi, með fallegan trjágróður í grenndinni og laglega íbúðabyggð austan og vestan við?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2006 | 07:53
Örljóð - I
(um sigurvegarann, hver svo sem hann er hverju sinni)
Hann
vann
Dægurmál | Breytt 26.4.2006 kl. 10:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2006 | 23:59
Fimm stjörnur
Dætur mínar elskulegar gáfu mér frábæra afmælisgjöf í morgun; nýja Liverpool treyju, gullbryddaða Evrópumeistaradeildartreyju - með fimm stjörnum, einni fyrir hvern Evrópumeistaratitil.
Hún kom sér vel í dag.
Nú er klukkan alveg að verða tólf á miðnætti og ég get ljóstrað því upp að ég átti afmæli í dag. Fáir vissu af því fyrir utan þá nánustu, en ég þakka þeim innilega sem sendu mér kveðjur.
Ég hef það ágætt í kvöld. Fyrir utan gráu hárin og gigtina er allt fínt að frétta . . .
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.4.2006 | 23:54
London, Cardiff, Dortmund, Istanbul
Hvað eiga þessir borgir sameiginlegt?
Þar hef ég horft á Liverpool í einhvers konar úrslitaleikjum - í ensku bikarkeppninni, UEFA-bikarnum og Meistaradeild Evrópu - og aldrei séð mína menn tapa!
Verð ég ekki að fara til Cardiff?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2006 | 23:08
Flott hjá fótboltastrákunum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2006 | 19:23
Skemmtilegur heimaleikur - en þó tap
Við Þórsarar lékum í dag fyrsta alvöru heimaleikinn á Íslandsmóti meistaraflokks í handbolta. Valsmenn komu í heimsókn í íþróttahús Síðuskóla og þeir unnu 32:30 en þrátt fyrir það var leikurinn dálítið skemmtilegur. Þó ekki væri nema fyrir það við spiluðum norðan við á, þ.e.a.s. Glerá, á alvöru heimavelli, og nærri var uppselt - örugglega í fyrsta skipti í sögu Þórs síðan Skemman var og hét fyrir um það bil 30 árum.
Addi Mall, Arnór Þór Gunnarsson, var markahæstur hjá Þór í dag eins og svo oft áður í vetur. Addi gerði 9 mörk, Atli Ingólfsson gerði 6 mörk af línunni, Gummi Trausta 5, Heiddi Aðalsteins og Aigars Lazdins 3 hvor, Sigurður B. Sigurðsson 2, og þeir Sindri Viðarsson og Oddur Grétarsson 1 hvor. Þetta var fyrsta mark Odds í meistaraflokki - hann hefur verið í hópnum í þremur síðustu leikjum en skoraði nú í fyrsta sinn; glæsilegt mark úr vinstra horninu.
Ótrúlegt en satt að ég, ungur maðurinn, skuli hafa verið með móður Odds í barnaskóla! Ekki eldri en ég er, held reyndar upp á 44 ára afmælið í dag en finnst ég vera 20. Í mesta lagi 25.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2006 | 19:10
KEN - Kvikmyndaklúbbur Eyfirðinga og nærsveitamanna ?
Ég fékk þennan póst í dag frá kunningja mínum - og vona að draumur hans rætist:
"Eins og flestum ykkar er kunnugt þá hefur verið rætt um stofnun kvikmyndaklúbbs á Akureyri á liðnum misserum og segja má að gerð hafi verið tilraun í þá átt með svo kölluðum kvikmyndatorgum, sýningum tengdum kennslu í nútímafræði (ofl. greinum). Einnig hefur þýsk-akureyska vinafélagið boðað til sýninga á nýjum og athyglisverðum myndum frá Þýskalandi. Nú virðist vera að rætast úr fyrir þeim okkar sem hafa áhuga á öðru en því sem er sýnt í kvikmyndahúsum staðarins. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær (20. apríl, sumardaginn fyrsta) þá ætlar Örn Ingi Gíslason að vígja 80 manna kvikmyndasal að Óseyri 6 með sýningu myndarinnar Flóttinn (135 mín, leikin) 6. maí kl. 17.00. Fyrir sýninguna verður málþing um stöðu kvikmynda á Íslandi (nánar seinna). Við Örn vorum sammála um að gaman væri ef hægt væri að tilkynna stofnun kvikmyndaklúbbs við þetta tækifæri."
Ég var svo skrýtinn á unglingsárum að fara á sérstakar sýningar á myndunum Jónatan Livingston mávur og Dagur í lifi Ivans Denisovítsj, sú seinni eftir sögu Solsjenítsíjns. Held það hafi verið KVIKMA, Félag kvikmyndaáhugamanna í MA, sem stóð fyrir sýningunum.
Þetta voru skemmtilegir tímir, og koma vonandi aftur nú.
Dægurmál | Breytt 23.4.2006 kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)