14.8.2006 | 22:36
Stökkbreyting?
Mjög líklega hefur orðið stökkbreyting í fjölskyldu minni. Minnsti frændinn, Birgir Orri Ásgríms bróður míns og Lenu Rutar sonur, er nefnilega með ótrúlega bíladellu. Hann er ekki nema tveggja ára en veit fátt skemmtilegra en að skoða bíla og benda þá, segja hvað þeir heita og hvað þeir segja!
Ekki skal ég útiloka að bíladellugenin séu komin úr Lenu eða hennar fólki, Kiddi bróðir Lenu á að minnsta kosti forláta Bronco sem Biggi kallar "Bokkó" og í honum heyrist "bvúúmmmmmm" skv. litla frænda. Hann hefur reyndar engan áhuga á að segja hvað minn bíll heitir, enda á ég bara venjulegan fjölskyldubíl sem segir líklega ekkert sérstakt, en hann þekkir þá dós og líka bílinn sem ég er oft á í vinnunni! Á sunnudaginn kom fjölskyldan saman hjá Guffu og Sigga og Biggi litli linnti ekki látum fyrr en hann fékk að skreppa út að keyra - þ.e.a.s. að setjast undir stýri í bíl afa síns og ömmu og grípa aðeins í stýrið. Þarna situr amma Heba með hann og í bakgrunni eru Lilja og Heba Þórhildur, frænkur hans, og svo stóra systir hans hún Heba Karitas.
Mér sýnist litla bíladellukarlinum ekki leiðast undir stýri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2006 | 22:25
Fjör á Siglufirði
Það var mikið fjör á Siglufirði um síðustu helgi, þegar árlegt Pæjumót KS í fótbolta fór fram, en mörg hundruð stelpur léku þar frá föstudegi til sunnudags. Við kíktum til Sigló á laugardaginn, áður en haldið var í tvöfalt fertugsafmæli heima á Akureyri um kvöldið, hjá Guffu og Sigga.
Nánast hafði rignt eldi og brennisteini á Sigló á föstudeginum og vellirnir voru sumir orðnir ansi erfiðir yfirferðar, ekki síst fyrir minnstu fæturna. Einn leikurinn sem við sáum var þegar Alma og félagar hennar í 5. flokki B hjá Þór unnu lið Þróttar frá Neskaupsstað, og fyrst sumir Þórsararnir voru hvort sem er orðnir býsna drullugir skellti allt liðið sér í forina þegar flautað hafði verið til leiksloka. Þær eru þarna á myndinni og nokkrar stelpur úr Þróttarliðinu líka, en þær höfðu ekki síður gaman að uppátækinul.
Fararstjórarnir voru hins vegar ekki neitt sérlega glaðir með drullumallið, því þeir reiknuðu líklega með því að þurfa að þvo búningana - en stelpurnar drifu sig beint í Siglufjarðarána, sem er aðeins steinsnar frá völlunum inn við Hól, og skoluðu vel úr búningunum!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)