6.6.2006 | 17:16
Út um gluggann
Hvers konar djöfuls hyski er það sem hendir tómri gosflösku úr gleri út úr kyrrstöðum bíl á rauðu ljósi? Bara sisona, og flaskan rúllar eftir malbikinu, undir bílinn og áfram yfir á næstu akreinar.
Ég vona að unga fólkið sem beið í litlum, gráum fólksbíl á Glerárgötu áðan, og beygði svo til vinstri upp með Glerá, lesi þennan pistil. Ég var sem sagt karlinn sem flautaði á þau og baðaði út höndunum.
Getur verið að bílnúmerið hafi verið MR-243? Held það en fullyrði þó ekki.
Alveg er óþolandi að horfa upp á þetta.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.