5.8.2006 | 23:11
Fullur bær
Akureyrarbær er fullur um helgina. Af gestum.
Við hokrum hér 17 þúsund hræður hversdags en nú ku allt að því annað eins í heimsókn. Tvær dætra minna, Alma og Sara, fóru með mér í rannsóknarleiðangur um kvöldmatarleytið að félagssvæði okkar Þórsara, sem er reyndar aðeins steinsnar frá heimili fjölskyldunnar. Þar voru mörg tjöld og varla hægt að koma fyrir frímerki í viðbót á blettinn norðan Bogans.
Alma og Sara standa þarna á klöppinni norðan við Lundgarð, litla húsið þar sem Magga frænka bjó árum saman - úti í sveit! Nú er Lundgarður í eigu Þórs, í löngu grónu íbúðahverfi. Mér sýnist þær systur skemmta sér ágætlega.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.