28.8.2006 | 15:58
Endurskoðað áhættumat staðfestir fyrra mat
Á stjórnarfundi heimilisins var í dag lagt fram endurskoðað áhættumat vegna blómakassans í suðaustur horni lóðarinnar. Eiginkona mín, húsbóndinn á heimilinu og eigandi kassans, ákvað á sínum tíma að engin hætta stafaði af blómakassanum. Endurskoðað áhættumat staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var.
Athugasemdir
Ég skil nú ekki hvers vegna þú skrifar ekki fleiri viðskiptafréttir Skapti. Greinilega fær í því eins og öðru
Guðrún Hálfdánardóttir (IP-tala skráð) 29.8.2006 kl. 14:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.