Færsluflokkur: Dægurmál

Leiðinlegasta bók í heimi

Varúð! Varúð!

Barnabókin Benni og Bára (appelsínugul, í einhverjum smábarnabókaflokki sem ég man ekki hvað heitir) er leiðinlegasta bók í heimi. Að minnsta kosti sú leiðinlegasta sem ég hef lesið. Og ekki bara lesið einu sinni eða tvisvar, heldur örugglega hundrað sinnum.

Það rifjaðist skyndilega upp fyrir mér á dögunum, þegar ég fann nefnda skruddu í kassa niðri í bílskúr, að ég var búinn að ákveða að vara þá kynslóð við, sem nú á börn á lesa-fyrir-á-kvöldin aldri.

Þarna í bílskúrnum stakk ég upp á því við konuna mína í fyrsta skipti að henda bók í ruslið. Við ákváðum þó að gera það ekki, aðallega vegna þess að dætur okkar eru orðnar það gamlar að nú lesa þær allt sjálfar og hafa gert lengi - líka Sara þó að hún sé ekki nema átta ára. Það er sem sagt engin hætta á að maður þurfi að fletta Benna og Báru framar.

En þau skötuhjú verða falin í neðstu skúffunni ef ég verð einhvern tíma afi.


Amigos Para Siempre

Mér hefur þótt vænt um Barcelona síðan ég gisti borgina í nokkrar vikur sumarið 1992 vegna Ólympíuleikanna.

Borgin er dásamlegur staður.

Amigos Para Siempre, var þá sungið: Vinir að eilífu. Enda erum við, ég og borgin, vinir að eilífu.

Þarna við Miðjarðarhafið svitnaði ég meira en nokkru sinni áður í keppni; tók þó ekki þátt í hefðbundnum greinum heldur linsuburði fyrir Raxa og ritræpu, bæði innanhúss og utan, lesendum Morgunblaðsins til ómældrar gleði...

Þótt ekki væri nema vegna þessara dýrðardaga í borginni hefði ég ekki á móti því að hið fræga knattspyrnulið borgarinnar komist í úrslit Meistaradeildarinnar (og vinni helst úrslitaleikinn í París, þó svo Orri Páll og Rúnar megi ekki sjá þetta sem er innan svigans).

Hvað kostar flugmiði til Parísar?


Ronaldinho !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Sáuð þið sendinguna?


1017

1017 gestir og 51 í dag. Ef grunngjald væri þúsund kall í hvert skipti væri ég búinn að græða rúma milljón - svart. En þá væru sumir búnir að tapa dálítið miklu og myndu líklega draga úr ferðum inn á vefin og þar með færi ég á hausinn.

Jæja, með afslætti almennra hluthafa í Skapti Group, skyldmenna og annarra vina væri hagnaðurinn væntanlega um það bil 500 krónur.

Það má nú gera ýmislegt fyrir 500 kall, t.d. kaupa fjóra lítra af bensíni. Eða einn bjór.


Eitt þúsund og ein - heimsókn

Sælt verið fólkið. Heimsóknir inn á bloggið mitt eru nú orðnar nákvæmlega 1001, þar af 36 í dag sýnist mér á teljaranum og 360 í vikunni. Hátíð verður haldin í kvöld af þessu tilefni.

Nei, ég laug, þær eru orðnar 1002... Stöðug hreyfing. Best að vista þetta skjal áður en lygin verður svæsnari. En aðsóknin er fín, enda er ég að íhuga að setja áskriftargjald á heimsóknir á síðuna, setjast svo í helgan stein og telja peninga það sem eftir er ævinnar!

Þeir sem eru sáttir við þá hugmynd vinsamlega rétti upp hönd.


1200AMT060418

Þið fyrirgefið, þetta er dulmál til nokkurra útvaldra, ódýrara en hringja skilaboðin út...

1 - 2 - 1- 1

Sífellt er talað um leikkerfi í íþróttum; 4-4-2, 3-5-2, 4-1-3-1-1, 5 1, 3-3 . . .

Vikuna sem nýhafin - þeas þá fimm daga sem venjulega teljast til svokallaðrar vinnuviku - væri hægt að kalla 1 - 2 - 1 - 1.

Vikuna í heild, frá sunnudegi til laugardags, aftur á móti 2 - 2 - 1 - 1 - 1.


Bensínverð

Nú þurfa Íslendingar að dusta rykið af reiðhjólinu.

Eða hætta að borða.


"I just do it, you know?"

Týndi sonurinn, Robbie Fowler, kom aftur til Liverpool í janúar eftir nokkur ár í röðum annarra félaga og hefur staðið sig vel. Hann gerði flott mark í dag, stjórinn Benitez fékk þar með sigur (1:0) á Blackburn í 46 ára afmælisgjöf og Liverpool er öruggt með meistaradeildarsæti næsta vetur.

Góður dagur.

"I hate talking about football. I just do it, you know?" sagði Fowler einhvern tíma. Þannig var þetta í dag; hann skoraði "bara" eftir glæsilegan undirbúning. Markið var umdeilt og ég skil gremju Blackburnara en það var að öllum líkindum löglegt skv. reglunum. Þeim þyrfti hins vegar að breyta. Djibril Cissé var greinilega í rangstöðu þegar Fowler lék boltanum í átt að honum en Frakkinn snerti ekki boltann, Morientes kom hins vegar aðvífandi og sendi laglega á Fowler aftur og hann skoraði.

Í gær voru liðin 17 ár frá harmleiknum á Hillsborough. Árleg minninarathöfn um þá sem létust fór fram á Anfield í gær, og sigur í dag var virðingarvottur við hina látnu. Og mikilvægur í baráttunni um eitt af toppsætunum í úrvalsdeildinni nú.


Ljósið

Ljósið

Í kvöld var boðið upp á skíðagöngu í göngugötunni á Akureyri - nema hvar? - og samhliðasvig í Gilinu. Í Höllinni fór svo fram Íslandsmótið í fitness. Ég veit ekki betur en allt hafi farið vel fram í hvívetna, pínulítið kalt utandyra en fínt í Höllinni. Þetta fallega ljós logaði efst í svigbrautinni. Kannski friðarljós vegna þess hve horfir vel í heiminum?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband