Færsluflokkur: Íþróttir

Sögulegur dagur

Öldungamót Þórs í körfubolta fór fram í Höllinni á laugardaginn og reyndist samkoman sú heldur betur söguleg. Stórliðið Synir lands og vona eða Vinir lands og sona - man það aldrei, en forvitnir geta snúið sér til Dúdda, hann fann nafnið upp óafvitandi þegar hann mismælti sig í Sjallanum um árið - gerði sér lítið fyrir og sigraði í leik. Vann heilan leik! Og það án þess að ég væri með!

Mér finnst ósanngjarnt, bæði gagnvart félögum mínum í stórliðinu og andstæðingunum, að nefna liðið sem tapaði leiknum sögulega. Að minnsta kosti ekki strax.

Ég get staðfest að leikmenn stórliðsins voru býsna þreyttir á æfingunni í gærkvöldi, í það minnsta sumir. Moli þurfti meira að segja einu sinni að játa sig sigraðan þegar við börðumst um frákast og þá er hann illa fyrir kallaður. Hafði enda leikið fimm sinnum í 2x16 mínútur á laugardeginum. Það sýnast mér vera 160 mínútur eða nærri þrír klukkutímar. Ég hefði varla getað reimað á mig skóna eftir svoleiðis dag.


Gaman á Íslandsglímunni

Það var gaman á Íslandsglímunni í íþróttahúsi Síðuskóla í gær. Keppnin fór fyrst fram 1906, þetta var því 100 ára afmælismót og vel við hæfi að það færi fram í höfuðstað Norðurlands, þar sem fyrsta mótið fór fram á sínum tíma.

Keppni var spennandi svo ekki sé meira sagt, aukaglímu þurfti til að skera úr um sigurvegara bæði í karla- og kvennaflokki, og líka um þriðja sætið.

Úrslit voru óvænt í karlaflokki en þó ekkert aprílgabb að formaður Glímusambandsins skyldi vinna!


Smokey Bay

Ég stalst til Reykjavíkur um miðjan dag og kom aftur heim í kvöld. Kíkti á ársþing HSÍ í Laugardalnum. Skömmu eftir að ég lenti á Akureyri í kvöld fékk ég sms í símann með þeim upplýsingum að Þór og Fram hefðu gert jafntefli, 28:28, á Íslandsmótinu í handbolta í Höllinni. Og mínir menn voru víst óheppnir, eða klaufar, að vinna ekki leikinn. Þannig hefur það verið í sumum undanfarinna leikja enda liðið í heldur leiðinlegri stöðu.

Það var eins og að koma til útlanda að lenda í Reykjavík.  Auð jörð og hlýtt í veðri. Allt á kafi í snjó fyrir norðan.

Mér finnst snjórinn fallegur, yfir vetrartímann, og á meðan hann hylur jörðina getum við að minnsta kosti verið viss um að sinueldar ógna ekki byggðinni.


Þegar Eiður komst á flug með Chelsea

Eiður Smári
Það er frábært hve langt Eiður Smári Guðjohnsen hefur náð á knattspyrnuvellinum. Allir vita hve góður hann er, en unga kynslóðin - krakkarnir sem dýrka hann hvað mest í dag - man kannski ekki eftir því hve illa hann meiddist fyrir fáeinum árum; svo illa að læknar töldu jafnvel að Eiður myndi ekki leika knattspyrnu framar.
Eiður tókst á við erfiðleikana sem meiðslunum fylgdu eins og sönn hetja og blómstraði á ný. Ég hef fylgst með lengi með Eiði og var m.a. viðstaddur þegar hann var í fyrsta skipti í byrjunarliði Chelsea haustið 2000. Ótrúlegt hvað tíminn líður! Ég skrifaði eftirfarandi grein í Morgunblaðið eftir leikinn, hún birtist þriðjudaginn 3. október þetta ár, undir fyrirsögninni Eiður kominn á flug! 
- - - - -
Hann sker sig úr. Það gerir skjannahvítt hárið. Skrýddur blárri Chelsea-treyju númer 22, merktri Gudjohnsen.

Hann tekur nokkrum sinnum á sprett að boltanum og spyrnir fast með vinstri fæti - alltaf með vinstri.

Ekki er nema tæp klukkustund síðan annar ljóshærður Íslendingur, í blárri Chelsea-treyju númer 22, merktri Gudjohnsen, sveiflaði vinstri fætinum og skoraði gegn Liverpool - í fyrsta heila leik sínum í úrvalsdeildinni, að viðstöddum 34.966 áhorfendum.

Sá fyrrnefndi er einungis tveggja ára og heitir Sveinn Aron. Hann er að leika sér á þröngum gangi inn af blaðamannaherberginu á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea í London, ásamt fleiri piltum, sem eru tvöfalt eða þrefalt stærri. Faðernið leynir sér ekki. Hann er nánast alveg eins og Eiður Smári - bara nokkrum númerum minni!

Ekki fer á milli mála að strákurinn hefur gaman af fótbolta og enginn efaðist heldur um það sem sá áðurnefndan leik að pabbinn nýtur þess að vera í vinnunni um þessar mundir. Samstarfsmennirnir og stuðningsmenn liðsins voru greinilega ánægðir með íslenska landsliðsmanninn en gestirnir rauðklæddu, leikmenn Liverpool, hefðu eflaust ekkert haft á móti því þótt Eiður sæti á bekk varamanna þar sem hann hefur verið undanfarið.

Enskir blaðamenn hrifust líka af glókollinum ofan af Íslandi, þeim eldri altso; hann var valinn maður leiksins í a.m.k. tveimur dagblaðanna í gær, Sun - sem segir hann aldrei hafa gefið ótraustri vörn Liverpool grið - og Independent, og var í liði dagsins hjá því síðarnefnda; þar var þeim stillt upp í framlínunni Eiði Smára og Frakkanum Tierry Henry, sem gerði stórkostlegt mark fyrir Arsenal gegn Manchester United.

"Frábær dagur fyrir Eið"

Sigur Chelsea á Liverpool var mjög öruggur og sanngjarn. Claudio Ranieri, sem nýlega tók við stjórnvelinum á Stamford Bridge, upplýsti á blaðamannafundinum eftir leikinn að honum hefði fundist Norðmaðurinn Tore Andre Flo - sem alla jafna hefur leikið í framlínu Chelsea - vera þreyttur; þess vegna hann hefði hann verið settur á varamannabekkinn. Eiður tók stöðu hans í liðinu, og þjálfarinn var ánægður með fyrsta heila leik Íslendingsins. "Þetta var frábær dagur fyrir Eið. Hann barðist í hverju einasta einvígi, lék mjög vel og skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið."

Mörkin

Sander Westerveld, markvörður Liverpool, kom Chelsea yfir snemma leiks þegar hann kýldi knöttinn í eigið mark eftir hornspyrnu Gianfranco Zola! Ótrúlegt, en satt. Og aðeins mínútu síðar hafði heimaliðið skorað aftur; þar var Jimmy Floyd Hasselbaink á ferðinni með skot úr miðjum teig eftir frábæran undirbúning Eiðs Smára og Zola. Eiður hóf þá sóknarlotu og sendi knöttinn síðan til Hasselbainks, sem skoraði. Það var einmitt athyglisvert að fylgjast með því hve vel þeir náðu saman, Zola og Eiður; ekki var að sjá að þeir væru að hefja leik í fyrsta skipti saman.

Eiður Smári kórónaði svo frábæra frammistöðu sína með þriðja marki leiksins á 71. mín. Nýtti sér slæm mistök andstæðinganna, komst einn í gegnum vörn þeirra, lék á Westerveld markvörð og skoraði örugglega í tómt markið úr þröngu færi.

Eiður ánægður

"Ég er mjög ánægður með eigin frammistöðu í leiknum. Það var stórt skref fyrir mig að byrja inni á í úrvalsdeildinni," sagði Eiður Smári við Sky Sports-sjónvarpsstöðina. "Þetta var einmitt það sem við þurftum á að halda til að lyfta okkur upp. Sigurinn var góður fyrir félagið í heild, leikmenn, áhorfendur og aðra og þjappar okkur saman. Ég hafði ákveðnar væntingar þegar ég kom til félagsins; þegar ég sat á varamannabekknum í fyrstu leikjunum beið ég bara rólegur en ákveðinn í að vera tilbúinn þegar ég fengi tækifæri. Ég er mjög ánægður með allt liðið hér í dag, mér fannst ég leika ágætlega þegar ég kom inn á í um hálftíma í [Evrópuleiknum gegn St. Gallen í] Sviss, þrátt fyrir að við töpuðum. Það kom mér samt nokkuð á óvart að byrja inni á en ég er mjög ánægður," sagði Eiður. Fyrir leikinn var Chelsea í þriðja neðsta sæti deildarinnar en fór með sigrinum upp í 12. sæti. "Með þessum sigri lyftum við okkur upp um 5-6 sæti og það er náttúrlega mjög gott fyrir sjálfstraustið. Við þurftum virkilega á sigri að halda og liðið lék allt mjög vel."

Mikil hreyfing var á leikmönnum Chelsea. Hasselbaink var í fremstu víglínu, í uppstillingu sem sumir kjósa að kalla 3-5-1-1, en aðrir nefna 3-4-3. "Það er ekki leikkerfið sem skiptir máli, heldur leikmennirnir," sagði Ranieri; "með hvaða hugarfari þeir fara inn á völlinn, og ég var mjög ánægður með það í dag. Eftir tapið [í Sviss] á fimmtudaginn var ánægjulegt að sjá hvernig menn rifu sig upp í dag."

Ekki alltaf auðvelt

Eiður Smári Guðjohnsen hefur haft lifibrauð sitt af því að æfa og leika knattspyrnu síðan 10. nóvember 1994, þegar hann var aðeins 16 ára og 56 dögum betur. Og hann hefur sannarlega kynnst því að líf manna í þessu starfi er ekki alltaf dans á rósum. Framtíðin var björt þegar strákur samdi við PSV Eindhoven í Hollandi á sínum tíma, en slæm meiðsli töfðu því miður fyrir honum. Útlitið var ekki bjart á tímabili, læknar PSV munu m.a.s. hafa hrellt hann með því að ferillinn væri jafnvel á enda. En þeir höfðu rangt fyrir sér, guði sé lof.

"Það er ekki alltaf auðvelt að vera atvinnumaður. Andlega hliðin skiptir miklu máli og ég verð að segja að Eiður Smári kom mér strax mjög vel fyrir sjónir hvað hana varðar. Ég vona að hann eigi glæsilegan knattspyrnuferil framundan - og að hann verði sem lengst hjá PSV," sagði Frank Arnesen, danski landsliðsmaðurinn fyrrverandi og framkvæmdastjóri PSV, við Morgunblaðið, þegar fyrsti samningurinn var undirritaður.

Danskurinn átti kollgátuna. Styrkleiki Eiðs Smára felst auðvitað að miklu leyti í frábærum knattspyrnuhæfileikum, en ekki síður í andlegum styrk. Hann neitaði að gefast upp þegar á móti blés og er nú að uppskera eins og hann sáði til.

Eftir nokkra leiki með KR sumarið 1998 fór hann til 1. deildarliðs Bolton á Englandi. Þar á bæ voru menn tilbúnir að gefa honum tækifæri. Höfðu trú á honum. Og íslenskir íþróttaáhugamenn þekkja framhaldið: Eiður Smári sló rækilega í gegn á síðustu leiktíð og var í sumar keyptur fyrir fúlgur fjár til stórliðs Chelsea.

Gianluca Vialli, knattspyrnustjóri liðsins, lýsti því yfir í byrjun leiktíðar að Íslendingurinn væri fyrst og fremst keyptur með framtíðina í huga. Ekki væri víst að hann léki mikið í vetur en Chelsea hefði hér verið að festa sér lykilmann í liðinu næsta áratuginn.

Liðinu gekk ekki vel í byrjun tímabilsins og einn góðan veðurdag fyrir skömmu var Vialli sagt upp störfum. Við starfinu tók áðurnefndur Ranieri en Eiður Smári var svo óheppinn að togna á ökla í þann mund sem þjálfarinn hóf störf. "Ég var meiddur fyrstu vikuna sem hann var við stjórnvölinn og hef aðeins verið á æfingum hjá honum í fimm daga," sagði Eiður í viðtalinu sem vitnað var til að ofan, og taldi of snemmt að tjá sig um nýja stjórann eða bera hann saman við Vialli. En hann var vitaskuld ánægður með leikinn gegn Liverpool og úrslit hans. "Þetta var það besta sem gat komið fyrir eftir ósigurinn í Evrópukeppninni."

Á flugi

Í viðtali sem höfundur þessarar greinar átti við Eið Smára, og birtist hér í blaðinu sumarið 1998, þegar hann var hjá KR, sagði hann m.a.: "Ég var alltaf efnilegur, var stærri og líklega betri en jafnaldrarnir og svo sprakk ég út - blómstraði - árið sem ég lék með Val, 15 ára [1994]. Þegar ég hugsa um það í dag finnst mér í raun fáránlegt að ég skuli hafa verið að spila og þótt með þeim betri í deildinni hér heima aðeins 15 ára. En sjálfstraustið var gífurlegt hjá mér á þessum tíma; ég hefði líklega getað flogið, hefði ég viljað!"

Ég sá ekki betur á sunnudaginn en sjálfstraustið væri aftur orðið bærilegt. Að hann sé u.þ.b. að hefja sig til flugs - jafnvel kominn á loft.

Ekki munaði miklu að feðgarnir Guðjohnsen, faðirinn Arnór og sonurinn Eiður Smári, lékju saman í landsliðinu fyrir fáeinum árum, fyrstir feðga í heiminum. Svo fór því miður ekki, vegna meiðslanna sem sonurinn varð fyrir, en miðað við það sem ég sá á sunnudaginn á Stamford Bridge, innan og utan vallar, skyldi enginn útiloka að Guðjohnsen-feðgar leiki saman í íslenska landsliðsbúningnum eftir svo sem hálfan annan áratug...

- - - - -

Þetta var sem sagt skrifað í október árið 2000, Sveinn Aron orðinn sex árum eldri og búinn að eignast tvo bræður. Ég veit ekki hvort þeir yngri eru flinkir með boltann, en ef þeim kippir í kynið verða kannski faðir og synir, Guðjohnsenar, saman í landsliðinu einhvern tíma.


Hærri laun en í Danmörku

Ég hélt að íþróttahreyfingin hér á landi berðist í bökkum.

Ummæli danska knattspyrnumannsins Peter Gravesen í Fréttablaðinu í dag koma því skemmtilega á óvart. Þar segist hann fá betur borgað fyrir að spila fótbolta með Fylki á Íslandi en hann fékk fyrir sömu iðju í Danmörku.

Knattspyrnuhreyfingin hérlendis er, eins og allir vissu svo sem, sér á báti. Aðrar íþróttagreinar berjast í bökkum/bönkum.

Anja Andersen

Daninn Anja Andersen, þjálfari Slagelse og líklega fremsta handboltakona sögunnar, komst í fréttirnar á dögunum þegar hún gekk af velli með lið sitt í deildarleik heima í Danmörku. Hún trylltist af bræði og hefur nú verið úrskurðuð í langt keppnisbann.

Einn skemmtilegasti handboltaleikur sem ég hef séð um ævina var úrslitaleikur kvenna í Atlanta 1996, þegar Danir sigruðu þáverandi heims- og ólympíumeistara Suður Kóreu. Þar fór Anja á kostum.

Ég var að glugga í það sem ég skrifaði í Moggann frá Atlanta. Þetta sagði ég m.a. eftir úrslitaleikinn:

"Þegar fimm sekúndur voru eftir af úrslitaleik Danmerkur og Suður-Kóreu í handknattleik kvenna og staðan jöfn var dæmt vítakast á heimsmeistarana. Það var Anja Jul Andersen, að mínu mati besti leikmaður Dana - frábær handboltakona, þó skapið hlaupi stundum með hana í gönur - sem braust í gegn af harðfylgi og vítakast var hárréttur dómur.

Vel var við hæfi að Anja tryggði Dönum gullið með þessum hætti; fiskaði víti og skoraði úr því sjálf. Hún stillti sér upp við vítalínuna, sveiflaði hægri hendinni fimlega og knötturinn sveif í átt að marki. Gullbjarma hafði slegið af brosi þeirra dönsku þegar vítið var dæmt, en skyndilega var eins og grá og kuldaleg stálslykja færðist yfir andlit þeirra. Kóreski markvörðurinn gerði sér nefnilega lítið fyrir og varði gott skot Önju, staðan var því enn 29:29 og framlenging óumflýjanleg.

"Mér fannst miklu betra að vinna með fjórum mörkum en einu!" sagði Anja á blaðamannafundi eftir leikinn - brosandi - en var fljót að bæta við, til að móðga engan: "Nei, bara að grínast!" En hún mátti líka alveg gantast þá. Danir voru sem sagt miklu betri í framlengingunni, sigruðu 37:33 og Anja, Camilla Andersen og markvörðurinn Susanne Lauritsen voru þær bestu í glæsilegum hópi þeirra."

Þótt Anja sé skapmikil hef ég alltaf haft gaman af henni. Hún gefur handboltalífinu sannarlega lit.


Skemmtilegu Goðamóti lokið

Þrumað að marki

Goðamóti 6. flokks stráka í fótbolta er lokið í Boganum hér á Akureyri. KR-ingar unnu keppni A-liða og Þórsarar urðu í öðru sæti. Mínir menn í Þór unnu svo D-liðakeppnina.

Fréttir af mótinu, öll úrslit og fullt af myndum er að finna á heimasíðu Goðamótsins. Besta leiðin þangað er í gegnum heimasíðu Þórs: www.thorsport.is og svo er tengill þar ofarlega vinstra megin inn á Goðamót.

Meðfylgjandi mynd tók ég úrslitaleiknum á milli KR og Þórs í úrslitaleik A-liðanna.


Fjögur núll

Einblínt á boltann
Mínir menn, Þórsarar, töpuðu fyrir KR í Boganum í deildarbikarkeppninni í kvöld. Leiknum lauk rétt í þessu. KR skoraði fjórum sinnum án þess að Þór tækist að svara. Ég sá ekki nema brot af seinni hálfleik en mér heyrðist flestir telja muninn heldur mikinn. KR-ingar skoruðu tvisvar á fyrsta kortérinu og tvö mörk seint í leiknum, þrjú þeirra eftir föst leikatriði, horn eða aukaspyrnu.

Fleiri myndir

Gaman á Goðamóti

Magnað fagn hjá Magna

Goðamót 6. flokks stráka í fótbolta er á fullu í Boganum. Allt gengur vel og krakkarnir hafa gaman af. Nokkrar stelpur eru með á mótinu, þar á meðal þessi, sem skoraði í 3:1 sigri gegn Breiðabliki 2 í keppni E-liðanna áðan.

Rosalega er gaman að þessu.


Liverpool vann

Búið að flauta af á Anfield. Rauði herinn vann 3:1. Gott mál.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband